bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

MHL103

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHL103 Lögmál, aðferðir og rýni

Nærsamfélagið: Margmiðlun

Undanfarar

LIM 113 SJL 103
Kenndur á vorönn

Markmið

Nemandi
• kunni að skipuleggja einfalt gagnvirkt upplýsingakerfi m.t.t. efnisinnihalds, notagildis og einfaldleika í notkun og útlits.

• kunni að notfæra sér möguleika á að tengja saman texta og myndir á gagnvirkan hátt

• þekki forsendur og tækni að baki gagnvirkri miðlun

• kunni vinnubrögð verkefnisvinnu ("prójekt"-vinnu)

• kunni að skipuleggja vinnu í frjálsu hópastarfi

• hafi þróað hæfileika sína til skapandi og gagnrýninnar hugsunar

• geti sett fram niðurstöður sínar á einfaldan og skýran hátt

• geti tekið á virkan hátt þátt í umræðu um verkefni sín og annarra nemenda

• þekki til höfundaréttarlaga og siðfræði netsins

Námsfyrirkomulag

Í áfanganum læra nemendur að búa til gagnvirkt margmiðlunarkerfi. Nemendur læra á vefhönnunarforrit og áhersla er á myndræna framsettningu, myndbyggingu og læsileika. Efniviður vinnunnar eru þeir sjálfir og nánasta samfélag sem þeir greina út frá sínum eigin forsendum. Niðurstöðu þessarar greiningar túlka þeir síðan á einföldu gagnvirku formi. Áfanginn byggist að mestu á verkefnisvinnu ("prójekt"- vinnu) þar sem nemendur vinna bæði einir og í litlum hópum.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
MHL103 Lögmál, aðferðir og rýni

Nærsamfélagið: Margmiðlun

MHL103_kaae_v12_AH

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica