bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

LIM203

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
LIM203 Listir og menning

Samtímamenning

Kennsla

Undanfari nánar

LIM 103 LIM 113

Æskileg námsönn

N/A

Markmið

Stefnt skal að nemendi

• skoði og skilgreini listir og menningu á líðandi stund,

• geti kynnt athuganir sínar og niðurstöður á skilmerkilegan og fjölbreytilegan hátt ogtekið virkan þátt í umræðu um verkefni sín og annarra nemenda.

Í lok áfangans skal nemandi

• kunna skil á grunnatriðum í eðlisfræði og sálfræði skynjunar

• geta rætt álitamál þar að lútandi

• geta rætt fagurfræðileg og táknfræðileg álitamál og áttað sig á möguleikum manna til að tjá sig í list og hönnun

• geta sett niðurstöður sínar fram á fjölbreytilegan hátt.

Námsfyrirkomulag

Nemendur kynna sér listir og menningu samtímans og gera á þessu kerfisbundnar athuganir með tilliti til merkingar og sögu. Námið byggir á virkri þátttöku og frumkvæði nemenda sem leggja mat á menningarlífið (hönnun, listviðburði, lífsstíl, fjölmiðla, bókmenntir) út frá eigin forsendum. Hlutverk kennarans er að aðstoða nemendur við undirbúning og úrvinnslu athugana sinna með því að tengja þær við hugmyndafræði og menningarsögu. Önnin skiptist í fjögur tímabil sem hvert um sig snýst um tiltekinn þátt lista og menningar. Hóparnir skila niðurstöðum og flytja verkefni sín í lok hvers tímabils. Einnig er farið reglubundið á sýningar, uppákomur og í heimsóknir á valda staði sem gildi hafa í menningarlífinu.

Námsmat

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
LIM203 Listir og menning

Samtímamenning

Haust 2011

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica