bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

LIM113

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
LIM113 Listir og menning

Skynjun, túlkun, tjáning


Áfangalýsing

Nemendur kynna sér forsendur skynjunar mannsins, túlkun hans á skynhrifum og möguleika hans á þeim grunni til tjáningar í listum og hönnun. Farið er skipulega í gegnum þá þætti sem snúa að ákveðnum sviðum: sjón og tvívíðri tjáningu í teikningu, málverki og prenthönnun; sjón og snertingu í þrívíðri tjáningu í rýmislist og hönnun; heyrn og tímaskyni í hljóðtjáningu í tónlist; fjölþættri skynjun í rúmi og tíma í kvikmyndum, leiklist, óperu og dansi. Efnið er tekið fyrir á fjölbreyttan hátt og unnið út frá eðlisfræði, líffræði og sálfræði og heimspeki, táknfræði og fagurfræði. Námið byggist að mestu á verkefnavinnu nemenda þar sem kennari leggur inn námsefnið og nemendur rannsaka síðan viðfangsefnin á margvíslegan hátt í hópum. Umræður skipa stóran sess í heimspekiumfjöllun áfangans.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
LIM113 Listir og menning

Skynjun, túlkun, tjáning

LIM113 vor 2012

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica