bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

ÍSL203

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
ÍSL203 Íslenska

Markmið

Að nemendur
• þekki helstu atriði í heimssögu norrænnar goðafræði og kannist við helstu goð norrænna manna og hlutverk þeirra
• þekki sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, helstu einkenni hennar og tengsl við önnur tungumál
• þjálfist í ritun bókmenntaritgerða
• læri að byggja upp heimildaritgerð og kynnist helstu aðferðum við meðferð heimilda í ritgerðasmíð
• þjálfist í notkun tölvutækni við frágang texta

Námsfyrirkomulag

Lesin er goðafræði, íslensk málsaga og kjörbók og skrifuð bókmenntaritgerð og heimildaritgerð. Í tengslum við goðafræði eru unnin margvísleg einstaklings- og hópverkefni. Í málsögu eru fjölbreytt verkefni unnin og lögð áhersla á að nemendur tengi fræðsluna við samtíma sinn m.a. íslenska nafnsiði, mállýskur, íslenska málstefnu og verði læsari á fornan og nýjan bókmenntaarf og sögu. Skrifuð er stutt ritgerð um kjörbók og áhersla lögð á byggingu ritgerðarinnar, málfar og sjálfstæð efnistök. Nemendur kynna kjörbók sína í kennslustund. Við ritun heimildaritgerðar er fjallað um meðferð heimilda, byggingu, mál, stíl og frágang. Nemendur skoði sýningar tengdar efni áfangans eftir því sem tilefni gefast til.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
ÍSL203 Íslenska
ÍSL203 vor 2012

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica