bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

FÉL103

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
FÉL103 Almenn félagsfræði

Kennsla

Undanfari

Undanfari nánar

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

Markmið

Að nemendur
• kynnist sögu félagsfræðinnar og helstu frumkvöðlum hennar
• kynnist helstu rannsóknaraðferðum félagsfræðinnar
• geti skilgreint og skýrt helstu grunnhugtök félagsfræðinnar eins og viðmið, gildi, hlutverk, stöður, hópa, félagslegt taumhald, félagsmótun og menningu
• geti notað grunnhugtök í gagnrýnni umræðu um samfélagsleg málefni og í munnlegri og skriflegri tjáningu
• geti lýst þróun samfélaganna og útskýrt menningarlegan mun og helstu orsakir fordóma og mismununar
• geti gert grein fyrir helstu áhrifum félagsmótunaraðila á lífshlaup einstaklinganna
• geti lýst í samhengi þróun fjölskyldunnar og atvinnuháttanna og helstu sambúðarforma í nútímanum
• skilji orsakir og þýðingu iðnbyltingar og umbyltingu atvinnu- og stjórnarhátta á 20. öld
• kynnist einkennum vinnumarkaðar hér á landi og geti lýst þremur megingerðum hagkerfa
• fjalli um jafnrétti kynjanna og ræði um jafnrétti á vinnumarkaði
• fjalli um mikilvægi trúarbragða til skilnings á mismunandi menningarheimum
• beiti öguðum vinnubrögðum, taki ábyrgð á eigin námi og geti haft samvinnu við aðra

Námsfyrirkomulag

Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um þau gagnvirku áhrif sem móta einstaklinginn og samfélagið. Námið er að verulegu leyti hugtakanám. Fjallað er um félagsfræðina sem fræðigrein og námsgrein og helstu frumkvöðla hennar. Lærð eru helstu hugtök félagfræðinnar sem notuð eru í umræðu um samfélög og þróun þeirra, svo sem félagmótun, fjölskylda, menning, hagkerfi og stjórnmál. Fjallað er um þróun helstu þátta íslensks samfélags og megineinkennum þess lýst. Markmiðið er að nemandinn öðlist þekkingu og skilning á félagslegu umhverfi sínu nær og fjær. Stuðst er við kennslubók, myndmiðla, Netið, ljósritað efni, gestir koma í heimsókn og farnar eru vettvangsferðir. Lokapróf, heimavinna og verkefni, hugtakanám og mætingar. Hópverkefni og vinnulag (ástundun, virkni, frumkvæði) eru metin inn í annareinkunn.

Námsmat

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
FÉL103 Almenn félagsfræði

Bhs                 Félagsfræði 103                        haust 2011

Áfangalýsing: Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um þau gagnvirku áhrif sem móta einstaklinginn og samfélagið.  Námið er að verulegu leyti hugtakanám.  Fjallað er um félagsfræðina sem fræðigrein og námsgrein og helstu frumkvöðla hennar.  Lærð eru helstu hugtök og fyrirbæri félagsfræðinnar sem notuð eru í umræðu um samfélög og þróun þeirra, svo sem eins of viðmið og gildi, félagsmótun, fjölskylda, menning, hagkerfi og stjórnmál.  Fjallað er um þróun helstu þátta íslensks samfélags og megineinkennum þess lýst.  Markmiðið er að nemandinn öðlist aukna þekkingu og skilning á félagslegu umhverfi sínu nær og fjær.

Kennsluefni:    Björn Bergsson, Nína Rós Ísberg og Stefán Karlsson (2008), Kemur félagsfræðin mér við?  Reykjavík: Iðnú


Tilhögun kennslu og náms:  Kennt er þrisvar í viku, 80 mínútur í hvert sinn.  Í fyrstu tveimur tímunum er kennt á hefðbundinn hátt með fyrirlestrum, en þá eiga nemendur að glósa “opinn” fyrirlestur kennarans. Í þriðja og síðasta tíma vikunnar verður oftast óhefðbundninn tilhögun með umræðum, myndböndum, vettvangsferð, einstaklings- og hópverkefnum.  Mikil áhersla er lögð á þátt nemandans, lestur, glósuskrif, þátttöku, mætingu, dagbókarskrif og vinnulag sem undirbúning að frekara félagsgreinanámi.

 

Námsmat er símat og án lokaprófs í desember að uppfylltum skilyrðum: 

 1.      Fimm stutt kaflapróf, fjögur hæstu  gilda                                                 40%         

2.      Dagbók eftir hvern tíma                                                                             20%

3.      Einstök smærri verkefni skv. nánari fyrirmælum                                   20%

4.      Kennaraeinkunn fyrir glósur, mætingu og vinnulag

          (virkni/frumkvæði/samvinna)                                                                      20%

 

Nemendur sem ná eftirfarandi árangri skv. lið 1 og tilgreinda raunmætingu sleppa við lokapróf:

-         fullum 7 og eru með 92% raunmætingu eða meira

-         fullum 8 og eru með 91% raunmætingu eða meira

-         fullum 9 og eru með 90% raunmætingu eða meira

 

Nemendur sem eru undanþegnir fullri mætingarskyldu vegna sjúkdóma eða aðstæðna eru undanþegnir almennum reglum um mætingar enda nái einkunn þeirra fullum 7 og raunmæting sé ekki undir 85%.  Annareinkunn gildir 50% á móti lokaprófi þeirra sem það þurfa að taka.

Með von um skemmtilega og árangursríka önn,

--------------------------------------------------------------------

Magnús Ingólfsson


Dagsetningar stuttu prófanna:

1.     2. kafli: MENNINGIN,   9. - 10. sept.

2.     3. kafli: SAMFÉLAGIÐ,  29. - 30. sept.

3.     4. kafli: FÉLAGSMÓTUNIN og 5. kafli:

           FJÖLSKYLDAN,  21. - 22. okt.

 4.  6. kafli: STJÓRNMÁL,  11. - 12. nóvember

5.  7. kafli: TRÚARBRÖGÐ og 1. kafli: FORMÁLI , 25. – 26. nóvember

       _________________________________________________________________________________________       

Borgarholtsskóli                                                                                          

Haustönn 2011

Kennari: Hanna Björg Vilhjálmsdóttir (hannabjorg@bhs.is)

Kennsluáætlun: Félagsfræði 103

 

 

Áfangalýsing: Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um þau gagnvirku áhrif sem móta einstaklinginn og samfélagið. Námið er að verulegu leyti hugtakanám. Fjallað er um félagsfræðina sem fræðigrein og námsgrein og helstu frumkvöðla hennar. Lærð eru helstu hugtök félagsfræðinnar sem notuð eru í umræðu um samfélög og þróun þeirra, svo sem viðmið, gildi, félagsmótun, félagslegt taumhald, stöðu, hlutverk, fjölskyldu, menningu og stjórnmál. Fjallað er um þróun helstu þátta íslensks samfélags og megineinkennum þess lýst. Markmiðið er að nemandinn öðlist þekkingu og skilning á félagslegu umhverfi sínu nær og fjær.

 

Kennsluefni: Björn Bergsson, Nína Rós Ísberg og Stefán Karlsson:

                        Kemur félagsfræðin mér við?  Iðnú 2008


Kennslufyrirkomulag: Mikilvægt er að nemendur taki virkan þátt í kennslunni sem verða í formi umræðna og  einstaklings- og hópverkefna. Ætlast er til þess að nemendur lesi heima – og verða gerð ,,lestékk“ reglulega. Niðurstaða þessa koma inní kennaraeinkunn. Þá verða einnig lögð fyrir svokölluð skyndipróf – sem koma þá án fyrirvara.

Námsmat:  Hlutapróf (x3) 45%

                    Ritgerð fyrri skil 10%

                    Ritgerð seinni skil 15%

                    Kennaraeinkunn (þátttaka í tímum, verkefni, ,,lestékk“, skyndipróf, mætingar) 30%

 

Nemendur sem ná samanlagt 7,5 úr hlutaprófum og 7,5 í kennaraeinkunn auk þess að fá amk 7,5 fyrir ritgerð (meðaltal úr fyrri og seinni skilum), og hafa auk þess 90% raunmætingu, þurfa ekki að taka lokapróf í maí. Lokapróf hjá þeim sem það þurfa að taka gildir 40%. 

 

                                                                      

                   Kennsluáætlun er gerð og birt með fyrirvara um breytingar.

 

                                                                                       Gangi ykkur vel ☺

-        Hanna


Áætluð yfirferð:

Vika   Efnisþættir athugasemdir

1.

22/8 - 26/8

 

a)      Kynning á áfanganum og nemendum

b)     Hvað er félagsfræði?

c)     Til hvers að læra félagsfræði? Hvað er svona dásamlegt við það?!

 

 

2.

29/8 – 2/9

 

             Kafli 2

 

 

3.

5/9 – 11/9

   Kafli 3  

4.

12/9 – 16/9

 

 Kafli 4

1 hlutapróf

 

5.

17/9  – 25/9

         Kafli 4  

6.

26/9 – 2/10

               Kafli 5  

7.

3/10 – 9/10

 

            Eitthvað skemmtilegt!

Hausthlé 7. og 10. okt

 

8.

11/10 – 16/10

 

Kafli 5

2 hlutapróf

 

9.

19/10 – 23/10

 

 Undirbúningur fyrir ritgerðarsmið                      

 Ritgerð  

 

10.

25/10 – 30/10

 

               Kafli 6

Fyrri ritgerðarskil

 

11.

3/11 – 7/11

 

                 Kafli 6

Seinni ritgerðarskil

 

12.

10/11 – 14/11

 

             Kafli 8

 

 

13.

17/11 – 21/11

 

              Kafli 8          

              3 hlutapróf

 

14.

24/11 – 28/11

 

 

 Litið um öxl – hvað lærðum við?

 Sjúkrapróf

 Upprifjun fyrir lokapróf

 
   

Síðasti kennsludagur 30. Nóv

Próf hefjast 1. des

 

 

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica