bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

ENS203

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
ENS203 Enska

Kennsla

Undanfari

ENS 103

Markmið

Stefnt skal að því að nemendur
• Geti skilið einfalt, ótextað sjónvarpsefni/myndefni/ margmiðlunarefni/úrvarpsefni (t.d. fréttir) þar sem talað er með mismunandi hreim og tónlistartexta, t.d. dægurlagatexta.
• Geti fylgst með og skilið megininntak orðræðu þegar fjallað er um nokkuð sérhæft efni sem hann þekkir og tengist þeim efnisflokkum sem fjallað er um.
• Geti sagt það sem hann þarf að segja við algengustu aðstæður í daglegu lífi, t.d. á ferðalögum erlendis, í síma, í samskiptum við útlendinga heima fyrir, innan skólastofunnar, í óformlegum samræðum.
• Geti talað með eðlilegum hraða.
• Geti lesið þyngri texta en í ENS 103, t.d. fræðitexta, bókmenntatexta með tiltölulega flóknum söguþræði, texta í dagblöðum og tímaritum eða alls kyns upplýsinga- og heimildaritum og á Netinu.
• Geti beitt mismunandi lestraraðferðum, þ.e. nákvæmnislestri, yfirlitslestri, hraðlestri og leitarlestri og viti hvenær hvað er viðeigandi.
• Geti tjáð sig skriflega á skipulegan hátt og í nokkuð löngu máli (40-60 línur eða lengra).
• Hafi náð tökum á grundvallaratriðum í ritgerðasmíð (upphafi, miðju, endi, röksemdafærslu, skiptingu í efnisgreinar).
• Sýni skapandi notkun þess orðaforða sem unnið hefur verið með og á viðeigandi hátt eftir aðstæðum.
• Geri sér grein fyrir mikilvægi hjálpargagna við ritun, svo sem orðabóka.
• Kunni skil á grundvallaratriðum enskrar málfræði.

Námsfyrirkomulag

Gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðra vinnubragða en í ENS 103. Lestur almennra og sérhæfðra texta sem ekki eru einfaldaðir. Unnið með orðabók þar sem það á við. Aukin áhersla á að nemendur tjái sig frjálst og óbundið. Markvissar hlustunaræfingar. Áhersla lögð á að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga. Lesin eru menningarverk úr hinum enskumælandi menningarheimi. Ýmis önnur verkefni sem sameina eiga alla færniþætti tungumálsins og byggja upp almennan og sérhæfðan orðaforða eru unnin jafnt og þétt á önninni. Námsmat fer fram í formi prófs í lok annar ásamt ýmsum verkefnum og prófum á önninni.

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
ENS203 Enska
ENS203 vor 2012

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica