bókmennt, handmennt, siðmennt

Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.

Áfangar og námsáætlanir

BÓK103

Áfangalýsing

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BÓK103 Bókfærsla 103

Kennsla

Undanfari

Undanfari nánar

Samhliða áfangi

Æskileg námsönn

Markmið

Stefnt skal að því að nemandi
• skilji samhengi dagbókar og aðalbókar
• geti sett um rekstrar- og efnahagsreikning samkvæmt upplýsingum úr aðalbók

Námsfyrirkomulag

Nemendur læra að færa ýmiss konar dagbókarfærslur.. Einnig eru kenndir reikningsjöfnuðir, þ.e. uppgjör á dagbókarformi. Lögð er áhersla á virðisaukaskatt og bókhaldslega meðferð hans. Námsmat samanstendur af tveimur skyndiprófum (15%), lokapróf (60%) og kennaraeinkunn (10%)

Námsmat

Námsáætlun

Áfangi Heiti Nánara áfangaheiti
BÓK103 Bókfærsla 103

Kennsluáætlun fyrir haustönn 2010

Kennarar:   Ásgeir Valdimarsson og Hans Herbertsson

 

BÓK 103

Markmið:

Markmið áfangans er að nemendur læri fyrst að færa auðveldar dagbókarfærslur. Einnig að þeir skilji samhengi dagbókar og aðalbókar og læri að setja upp rekstrar- og efnahagsreikning samkvæmt upplýsingum úr aðalbók.  Með þessari þjálfun í bókfærslu eiga að nemendur öðlast skilning á bókhaldshringrásinni. 

Einnig eiga þeir að læra meðferð virðisaukaskatts í bókhaldi, o. fl. einstök atriði. Farið yfir fyrningar, uppgjör fyrir ársreikningog reikningsyfirlit.

 

 

Dags.

Námsefni:

22.8. – 10.9.

Tvíhliða bókhald:  Janúar og febrúar, upphafskafli bókarinnar.

11.9. – 25.9.

Mars, apríl og maí                                  Próf 1

26.9. –  9.10.

Júní og júlí                                         

10.10.- 24.10.

Ágúst, september og október                 Próf 2

25.10.- 8.11.

Nóvember og desember                         

8.11. – 15.11.

Fyrningar, uppgjör fyrir ársreikning     Próf 3

22.11.- 29.11.

Reikningsyfirlit og  prófundirbúningur.

Í desember

Próf

 

Námsmat:

Skyndipróf  í  lok sept og okt og um miðjan nóv.  Tvö bestu reiknast í lokaeinkunn. Þau gilda 15% hvert en lokapróf  60%.

Ástundun og virkni í kennslustundum gildir 10% í lokaeinkunn.

 

Námsgögn:

Tvíhliða bókhald 1,31

eftir Sigurjón Valdimarsson, fjölrituð bók sem er textabók og vinnuhefti.

Bókin er seld í bókfærslutímum.

 


Kennslugögn

Senda grein



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica