Kvöldskóli
Innritun í kvöldskóla er í desember og ágúst.
Auglýsingar um innritun á hverjum tíma má nálgast á vefsíðunni Tilkynningar.
Jón Benediktsson hefur umsjón með kvöldskólanum. Starfið felur m.a. í sér framtíðarþróun og skipulagningu ásamt margvíslegri þjónustu og leiðbeiningu fyrir nemendur. Sími málmiðndeildar: 535 1716.
Námsráðgjafi
Námsráðgjafi veitir upplýsingar um nám og námsleiðir í Borgarholtsskóla og öðrum skólum, aðstoðar við skipulagningu náms, veitir ráðgjöf um námstækni og hvernig taka megi á örðugleikum í námi. Nýliðar eru hvattir til þess að nýta sér þessa þjónustu.
Námið
Námið er ætlað málm- og véltækninemum en einnig eru almennar greinar opnar öllum sem vilja hefja framhaldsskólanám. Þeim sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum gefst hér einnig kostur á að bæta sig.
Þeir sem vilja fá mat á fyrra námi komi með gögn þar að lútandi. Skólagjöld greiðast við innritun.
Á borði merktu Umsóknarblöð í anddyri skólans fá nemendur innritunarblöð og eru vinsamlegast beðnir um að fylla þar út nauðsynlegustu upplýsingar áður en lengra er haldið. Kennarar svara síðan fyrirspurnum og aðstoða nemendur við val á áföngum. Til að stytta bið við innritun er mikilvægt að nemendur skoði fyrri einkunna- og ferilblöð sín áður en sótt er um og beri þau saman við námskrá í málmiðnum. Skipun fyrrihlutanáms í málmiðngreinum er samkvæmt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla (á vef BHS). Þeir nemendur sem hófu nám fyrir haustönn 1998 fylgja eldri námskrá í málmiðnum (Námsvísir Borgarholtsskóla - gul bók).
Opnunartími skólans
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00-15:00 mánudaga til föstudaga. Símanúmer skrifstofu er 535 1700.
Ritgerða- og verkefnaskil
Að gefnu tilefni er ítrekuð ábyrgð nemenda í kvöldskóla á verkefnaskilum og því að verða sér úti um upplýsingar um það sem gerist í kennslustundum sem þeir missa af.
Nemendur þurfa að gera sér ljósar forsendur þess að þeir geti lokið tilteknum áfanga. Gangið úr skugga um að þið hafið undir höndum námsáætlun, allar upplýsingar um verkefna- og ritgerðaskil, kaflapróf og upplýsingar um hvers kyns smærri verkefni sem nauðsynlegt er að skila á réttum tíma til að ljúka áfanga. Misbrestur á verkefnaskilum getur leitt til þess að nemendur hafi ekki próftökurétt.

