bókmennt, handmennt, siðmennt

Kvöldskóli

DemanturinnInnritun í málmiðnadeild kvöldskóla Borgarholtsskóla fer fram:

föstudag 4. desember kl. 17–19
laugardag 5. desember kl. 11–14


Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir málmiðngreinar

Tilvalið fyrir þá sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum. Einnig eru kenndar allar suðugreinar: MIG / MAG, TIG, logsuða og rafsuða. 

Bóklegt Verklegt
EFM-103     efnisfræði málmiðna     HSU-102/212/232    verkleg suða
ITM-114     tölvuiðnteikning LSU-102/202     verkleg suða
  RSU-102/202     verkleg suða
  HVM-203/303     verkleg handavinna
  PLV-202     verkleg handavinna

Athugið: Áfangar geta fallið niður náist ekki nægur fjöldi nemenda í hópa.


Kennslufyrirkomulag

Kennsla hefst 11. janúar 2010 og kennt er mánudaga og þriðjudaga kl. 18:10-22:30.

Stundaskrá (pdf-skjal).

 

Skólagjöld í kvöldskóla
  Innritunar- og
umsýslugjald
Námseininga- og tölvugjald
(hver bókleg eining)
Námseininga- og tölvugjald
(hver verkleg eining)
Málmiðngreinar 6.000 3.000 4.700

Verkefnisstjóri
Jón Benediktsson hefur umsjón með kvöldskólanum. Starfið felur m.a. í sér framtíðarþróun og skipulagningu ásamt margvíslegri þjónustu og leiðbeiningu fyrir nemendur. Sími málmiðndeildar: 535 1716.


Námsráðgjafi

Námsráðgjafi veitir upplýsingar um nám og námsleiðir í Borgarholtsskóla og öðrum skólum, aðstoðar við skipulagningu náms, veitir ráðgjöf um námstækni og hvernig taka megi á örðugleikum í námi. Nýliðar eru hvattir til þess að nýta sér þessa þjónustu.


Námið
Námið er ætlað málm- og véltækninemum en einnig eru almennar greinar opnar öllum sem vilja hefja framhaldsskólanám. Þeim sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum gefst hér einnig kostur á að bæta sig.
Þeir sem vilja fá mat á fyrra námi komi með gögn þar að lútandi. Skólagjöld greiðast við innritun.
Á borði merktu Umsóknarblöð í anddyri skólans fá nemendur innritunarblöð og eru vinsamlegast beðnir um að fylla þar út nauðsynlegustu upplýsingar áður en lengra er haldið. Kennarar svara síðan fyrirspurnum og aðstoða nemendur við val á áföngum. Til að stytta bið við innritun er mikilvægt að nemendur skoði fyrri einkunna- og ferilblöð sín áður en sótt er um og beri þau saman við námskrá í málmiðnum. Skipun fyrrihlutanáms í málmiðngreinum er samkvæmt
Skólanámskrá Borgarholtsskóla (á vef BHS). Þeir nemendur sem hófu nám fyrir haustönn 1998 fylgja eldri námskrá í málmiðnum (Námsvísir Borgarholtsskóla - gul bók).


Opnunartími skólans
Skrifstofa skólans er opin frá 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga en frá 8:00-15:00 föstudaga og er símanúmer hennar 535 1700. Skólahúsið er opið til kl 22:30 mánudaga til fimmtudaga.


Ritgerða- og verkefnaskil
Að gefnu tilefni er ítrekuð ábyrgð nemenda í kvöldskóla á verkefnaskilum og því að verða sér úti um upplýsingar um það sem gerist í kennslustundum sem þeir missa af.
Nemendur þurfa að gera sér ljósar forsendur þess að þeir geti lokið tilteknum áfanga. Gangið úr skugga um að þið hafið undir höndum námsáætlun, allar upplýsingar um verkefna- og ritgerðaskil, kaflapróf og upplýsingar um hvers kyns smærri verkefni sem nauðsynlegt er að skila á réttum tíma til að ljúka áfanga. Misbrestur á verkefnaskilum getur leitt til þess að nemendur hafi ekki próftökurétt.



Senda grein


Í skólanum er boðið upp á fjölbreyttar námsleiðir. Fjölmargar námsbrautir eru í boði, ýmist í dagskóla, síðdegisnámi, dreifnámi eða kvöldskóla. Einnig eru kenndir valáfangar fyrir grunnskólanemendur.



Í Borgarholtsskóla

Þetta vefsvæði byggir á Eplica